Að ríkið leiti allra leiða til að fá Ramez Rassas til Íslands

Guest

/ #8 Hvers vegna...

2014-07-14 23:50

Hvers vegna var honum vísað frá Noregi? Mér finnst skylda okkar að skoða það mál áður en fólk hópast til að fá hann til Íslands. Norðmenn, Svíar og Danir taka á móti helling af flóttafólki, ef einum manni er neitað þá leitar að manni grunur að það sé ástæða fyrir því. Fólki er neitað ef það er t.d. dæmt fyrir glæpi. Er búið að athuga hans fortíð? Gæti verið eitthvað þar sem gerði það að verkum að hann ekki væri æskilegur? Ég staðhæfi ekkert, segi bara að það verður að skoða svona mál!!! Í guðanna bænum stoppið múgæsinginn, Íslendingar eru góðtrúa fólk sem stundum ætti að skoða ALLAR hliðar málsins og ekki gleypa útskýringar eins aðila hráar.