Slítum stjórnmálasambandi við Ísrael


Guest

/ #52

2014-07-22 00:03

Ísrael er fyrir löngu orðið apartheid-ríki. Í raun er það óvenjulega harðskeytt og grimmúðlegt nýlenduveldi sem hirðir ekkert um mannréttindi, heilsu og hamingju þeirra sem það undirokar. Nú stefnir Ísrael hraðbyri í átt til hreinræktaðs fasisma. Við svo verður ekki búið lengur. Því styð ég á þessum tímapunkti að Ísland slíti öllum stjórnmálatengslum við Ísrael og fer auk þess fram á alþjóðlegt viðskiptabann á ísraelskar vörur.