EKKI draga umsóknina tilbaka

Contact the author of the petition

This discussion topic has been automatically created of petition EKKI draga umsóknina tilbaka.


Guest

#151

2014-02-23 15:19

Það verður að klára málið og greiða atkvæði um fullbúinn samning.

Guest

#152

2014-02-23 15:20

Ég er því innilega sammála að það að draga umsóknina til baka er hættulegt skemmdarverk. Yfir 70% af útflutningi Íslands fer til Evrópuríkja, við eigum því mikilla hagsmuna að gæta. Við höfum nú þegar samþykkt aragrúa af reglum og tilskipunum ESB vegna aðildar okkar að EES. Við höfum því nú þegar deilt fullveldi okkar með Evrópusambandinu. Með aðild gætum við fengið eitthvað af fullveldinu aftur með því að hafa áhrif á gerðir sambandsins.
Bullað er um það að við ættum að halla okkur meira að þjóðum Austur-Asíu, samanber fríverslunarsamning við kínverja. Engin skynsamleg rök benda til að þessar þjóðir hafi áhuga á íslensku þjóðinni nema ef vera skyldi á fornri menningu svipað áhuganum á frumbyggjum Ástalíu. Efnahagur Íslands skiptir kínverja engu máli. Máli skiptir lega landsins vegna athugunarstöðvar fyrir norðurslóðir og umskipunarhafnar fyrir flutninga t.d. til og frá Grænlandi. Ef við erum utan ESB erum við fullkomlega varnarlaus gagnvart græðgi stórveldanna. NATO mun aldrei beita sér til stuðnings sjálfstæðis Íslands.

Guest

#153

2014-02-23 15:25

Trust me. I know what I'm doing.

Guest

#154

2014-02-23 15:38

Af hverju afnema þeir bara ekki allar kostningar?

Guest

#155

2014-02-23 15:41

Fyrir framtíðina

Guest

#156

2014-02-23 15:47

Orð skulu standa, þetta frumhlaup til slita vewrður að stöðva og boða þjóðaratkvæðagreiðslu um málið. Alls ekki að afturkalla umsóknina og skella í lás gagnvart ESB - halda dyrum opnum, þó ekki sé verið að semja í augnablikinu.

Guest

#157 Pimpinn

2014-02-23 15:49

Höldum áfram (með umsóknina) og gefum jafnvel í (HH, 2007)

Guest

#158

2014-02-23 15:50

Það er skýlaus krafa kjósenda að fá að kjósa um þetta mál.

Guest

#159

2014-02-23 15:52

Hvað felst í því fyrir okkur Íslendinga að ganga í evrópusambandið ? Hvað með þjóðareignir eins og fiskinn okkar t.d. Hverjir eru kostirnir og gallarnir við að ganga í evrópusambandið ? Þjóðin þarf að hafa þetta algjörlega á hreinu áður en við kjósum !

Guest

#160

2014-02-23 15:55

ÉG SKORA Á SEM FLESTA AÐ SKRIFA UNDIR.

Guest

#161

2014-02-23 15:56

Íslendingar lifa nú í vistabandi skulda sinna við banka í eigu núverandi valdhafa. Ef þeir ná að einagra landið frá umheiminum með þessum ólögum mun verða ansi langt í næstu fardaga. Í raun verða landsmenn verr settri en vistarbandsþrælarnir, þeir fengu þó að éta og húsaskjól. Nútíma útagáfn þarf að borga fæði og húsnæði fyrir sig sjálf.

Guest

#162

2014-02-23 15:56

Stjórnmálaforusta okkar virðist ekki hafa haft og hefur ekki mikinn áhuga á að skoða þjóðarvilja í þessu stærsta hagmunamáli okkar í dag. Þáverandi þingmeirihluti, sýnilega sannfærður um ágæti aðildar, spurði þjóðina ekki hvort hún vildi fara í viðræður við ESB. Núverandi meirihluti, jafn sannfærður um ókosti aðildar, vill svo alls ekki að þjóðin geti skoðað þann samning, sem hugsanlega næst. Úr þessu fæst eingöngu skorið með því að klára viðræður og leggja samning fyrir þjóðina. Öðru vísi getur þjóðin ekki gert sér grein fyrir kostum og göllum aðildar og þar með tekið upplýsta ákvörðun. Svo einfalt er þetta.

Guest

#163

2014-02-23 15:59

Er kominn tími til ađ dusta rykiđ af pottunum?

Guest

#164

2014-02-23 16:01

Sammála #163!

Guest

#165

2014-02-23 16:11

Ekki spurning, fá samning og kjósa svo um aðild. Hofum smá trú á borgurum þessa lands

Guest

#166

2014-02-23 16:12

Ég er ekki oft sammála Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni en í einu tilliti er ég það þó algerlega: Það ætti að sameina Sjálfstæðisflokkinn og Framsóknarflokkinn.

Guest

#167

2014-02-23 16:15

Þetta er ekkert einkamál.

Guest

#168

2014-02-23 16:15

Þjóðin á að ráða í mikilvægum málum

This post has been removed by its writer (Show details)

2014-02-23 16:18



Guest

#170

2014-02-23 16:19

Burt með þessa ríkisstjórn og kosningasvik hennar. Þjóðin á að fá að kjósa. Það er ekki einhverra örfárra pólitíkusa að ákveða fyrir okkur í svona stóru og mikilvægu máli.


Guest

#172

2014-02-23 16:20

Þjóðin á að fá að vita hvað er í boði.Það á að fara eftir vilja þjóðarinnar

Guest

#173 Við krefjumst þess að þjóðin eigi síðasta orðið!

2014-02-23 16:21

Við krefjumst þjóðaratkvæðagreiðslu í vor um það hvort halda eigi ESB aðildarviðræðum áfram. Ef þjóðin segir "nei" við áframahaldi aðildarviðræðna getur ríkisstjórnin dregið umsóknina til baka með góðri samvisku. Ef þjóðin segir hins vegar "já" á núverandi ríkisstjórn umyrðalaust að segja af sér. Forsetinn boðar þá til nýrra kosninga. Ný ríkisstjórn getur síðan, af þeim heilindum sem núverandi ríkisstjórn treystir sér ekki til að gera, lokið samningarviðræðunum og lagt samninginn í dóm þjóðarinnar. Þjóðin á að eiga síðasta orðið í þessu mikilvæga máli.


Guest

#174

2014-02-23 16:22

Við erum Evrópuþjóð og eigum því samleið með öðrum Evrópuríkjum höfum alltaf fylgt þeirri menningu. Vegnaði verst þegar samskiptin voru minnst.

Guest

#175

2014-02-23 16:23

Fjöldamótmæli gegn afturköllun ESB umsóknar!