Áskorun til borgarstjórnar að klára íþróttaaðstöðu Í.R.


Guest

#1

2015-05-01 10:40

Sem fyrrum starfsmaður hjá Íþróttafélagi Reykjavíkur munandi vel eftir loforðinu, vinnuna sem við hjá ÍR ( starfsfólk og stjórnir allra deilda ) lögðum á okkur í von um að loksins myndi rætast úr húsnæðisleysis okkar langar mig að krefjast, ekki óska eftir efndum. Búið er að sýsla með okkar framlag á móti Borginni fram og aftur og marg breyta því sem lagt var upp með í fyrstu á þeim reitum sem hún fékk til sinna umráða en efndir til okkar eru engar. Ég kefst þess að Húsið sem við létum teikna og er að mig minnir samþykkt í grenndarkynningu verði byggt og það ekki síðar en strax.