Gegn tillögu að deiliskipulagi fyrir Vesturbugt/Slippasvæði

http://www.urbanistan.org/hafnarfrontur.jpg

http://www.urbanistan.org/M26b.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Við undirrituð mótmælum deiliskipulagstillögu fyrir Vesturbugt (hafnarstrandlengju Vesturbæjar). Við skorum á yfirvöld að falla frá þessu skipulagi og undirbúa nýja tillögu fyrir þetta mikilvæga og viðkvæma svæði borgarinnar.

Við kjósum frekar byggð í mannlegum mælikvarða sem einkennist af fjölbreytni og sem er í sátt við aðliggjandi hverfi. Við myndum vilja sjá skipulag sem tekur mið af sögu og  menningarverðmætum svæðisins og bætir líf hins almenna borgara nær og fjær.  Við höfnum óafturkræfri tilraunastarfsemi með einsleitt byggingarmódel og gríðarlegan byggingarmassa.

Þess í stað viljum við sjá fjölbreytni hvað varðar byggingar og skapandi umhverfi í anda sjálfbærrar þróunar.

Nánari upplýsingar má finna hér: https://www.facebook.com/groups/420072961363871/

 

 


Íbúasamtök Vesturbæjar    Contact the author of the petition