Skorum á listann "ÓRG Við skorum á þig að hætta!" að hætta

Kæri umsjónarmenn undirskriftarlistans "Ólafur Ragnar.  Við skorum á þig að hætta!" við skorum á ykkur að hætta kjánalegum söfnunum á undirskriftum og kynna sér betur Lýðræði 101. Ef ekki þá býðum við eftir sambærilegum undirrskriftarlistum í haust ef Steingrími, sem setið hefur á þingi frá 1983, dettur í hug að bjóða sig fram, nú eða Össur fær slíka flugu í hausinn, en hann hefur jú setið á þingi frá 1991. Ögmundur er kannski á mörkunum eða hvað, hann hefur jú bara setið frá 1995. Ætli Kristjáni Möller yrði þó ekki sleppt í gegn, enda hefur hann bara setið frá 1999.


Styrmir Hafliðason    Contact the author of the petition