Stöndum vörð um Grunnskóla Borgarfjarðar

Við undirrituð íbúar í Borgarbyggð stöndum heilshugar vörð um Grunnskóla Borgarfjarðar (GBF). Blómlegt samfélag líkt og Borgarbyggð þarf að hafa sterkar grunnstoðir. Þær eru fyrir hendi og þurfa að vera það áfram ef að áframhaldandi uppbygging á að vera í sveitarfélaginu. Þær öflugu starfstöðvar Grunnskóla Borgarfjarðar á Hvanneyri, Kleppjárnsreykjum og Varmalandi eru styrkur sveitarfélagsins en ekki veikleiki og við skorum á sveitarstjórn að halda starfsemi áfram á öllum stöðvum í núverandi mynd.

 


Álfheiður Sverrisdóttir    Contact the author of the petition