Undirskriftarsöfnun gegn frumvarpi um frjálsa sölu áfengis.

Contact the author of the petition

This discussion topic has been automatically created of petition Undirskriftarsöfnun gegn frumvarpi um frjálsa sölu áfengis..


Guest

#51

2016-03-18 10:35

Ég er á móti sölu áfengis í matvöruverslunum.

Guest

#52

2016-03-18 10:48

Fyrir komandi kynslóð. Kannannir sýna að betra aðgengi skapa vandamál.

Guest

#53

2016-03-18 11:55

Fyrir lýðheilsuna og unga fólkið!


Guest

#54

2016-03-18 12:40

This is a recognised matter of heatlth, life and death for thousands of people.

Guest

#55

2016-03-18 13:25

Drykkja mun aukast,og þjónustan versna.
Gunnar

#56 Re: link inn í frétt

2016-03-18 14:01

#1: -  

 Þarf ekki linkurinn að vera með fréttinni en ekki í athugasemdum? 


Guest

#57

2016-03-18 15:11

Mér finnst vera að velja minni hagsmuni framyfir meiri með þessu frumvarpi til laga. Mér finnst lýðheilsa fólksins vera mikils virði og að lýðheilsurök vera hunsuð í þessu máli.
Örn

#58 til viðvörunar .................

2016-03-18 15:20

 Til viðvörunar í næstu kosningum þarf að gera lista yfir þá þingmenn sem munu styðja frumvarpið. 

Dóri

#59 Re: Re:

2016-03-18 16:18

#39: Gummi - Re:  

 Það er alrangt að það sé tap á rekstri vínbúðanna


Guest

#60

2016-03-18 16:28

Nú þegar er nægur aðgangur að áfengi og að auki ef verslun verður gefin frjáls og áfengi selt í matvöruverslunum mun verð almennra matvæla hækka í þeim verslunum sem selja áfengi því það þarf eldra starfsfólk sem mun þá vera á hærri launum og því verður pottþétt velt út i verlagið á dagvöru.
sigjona
Guest

#61 Astæða min fyrir undirskriftinni

2016-03-18 16:39

Það er nóg aðgengi að áfegni nú þegar. Og frábærar leiðbeiningar að hafa þar um vín ef maður vill eða þarf. Ég vil ekki þurfa að ganga gegnum hillur fullar af vinföngum og bjór þegar ég fer að versla hollustuvörur í matinn


Guest

#62

2016-03-19 02:46

Fínt eins og þetta er í dag.
óskar páll sturlaugsson

#63

2016-03-19 17:53

okey góðpan árangur í forvarnar og vímufena málum hér á landi það er bara ekki hægt aðs egja það hefur bara aukist ef eithvað er. og að leifa þetta hækkar ekkert hættuna á því að krakkar fara að fá sér enginn unglingur fer að hugsa að fá sér að drekka útaf því það er auðveldara ef hann ætlar sér að fá sér þá er ekekrt sem stoppar það þannig nei ég mun ekki skrifa undir þetta ekki með þessum rökum þarf að koma betri ástæða afhverju ekki eigi að leyfa það

það eru engar alvöru sannanir fyrir því að leyfa hækki hættuna og minni líka á það er í hlutverki foreldis að upplýsa börn sín og sjá til að þau fara ekki í þetta of snemma ekki elggja ábyrgðina á aðra


Guest

#64

2016-03-19 18:19

Ég tel að áfengi eigi alls ekki að vera í matvöruverslunum. Það er nægilegt að hafa áfengi í sérverslunum.

Guest

#65

2016-03-19 20:16

Styð þetta frunvarp 100%, þessi gamaldags hugsun um að það þurfi að skammta allt niður í okkur er fráleit og asnaleg, allir sem eru að berjast gegn þessu eru rasshausar...


Guest

#66

2016-03-19 22:08

Þeir sem eru áfengissjúkir geta ekki sleppt því að borða og þurfa að versla sér í matinn, þessvegna er óþarfi að freista þeirra með því að hafa vín í matvörubúðum. Einnig er þetta fátækrargildra því að þeir sem eru fátækir og veikir fyrir víni munu frekar freistast til að kaupa vín frekar en mat ofaní börnin sín og sig. Þjónstan í ATVR er fín og þarf ekkert að breyta henni. Það er ekki heldur víst að ungmenni geta lengur unnið í matvörubúðum ef þær fara að selja áfengi og mér finnst ekki sjálfsagt að vín sé alstaðar sýnilegt börnum einog ávexir og grænmeti, þetta er lýðheilsumál. Því segi ég stórt NEI.


Guest

#67

2016-03-20 09:18

Ég er búinn að vera alkahólisti allt mitt líf og veit hversu mikið böl ég og fjölskylda mín hefur þurft að líða. . Meira og frjálsara aðgengi verður til þess að drykkja eykst til muna, það þarf enginn að velkjast í vafa um það, þess vegna er ég á móti sölu áfengis í verslunum almennt.

Guest

#68

2016-03-20 10:25

Myndi auka áfengisdrykkju. Nægt aðgengi nú.
Gunnar Hersveinn
Guest

#69 Common sense

2016-03-20 12:07

Heilbrigð hugsun malar frumvarpið í allri rökræðu, fræðileg hugsun er með allar niðurstöður sín megin. Ég myndi umsvifalaust draga frumvarpið til baka.


Guest

#70

2016-03-20 15:13

Áfengi á ekkert erindi í almennar verslanir, allt of mörg börn sem hafa áfengi allt of oft fyrir augum sér heima hjá sér, og það eitt að sjá áfengi veldur oft mjög mikilli vanlíðan hjá börnum. Tala af reynslu.

Guest

#71

2016-03-21 00:52

Sale of alcohol in general foodstores increases consumption and makes access easier for minors.
.

#72

2016-03-21 13:42

Óþarft að breyta, breytinganna vegna.  Gróðafíknin ein sem stýrir frumvarpinu.


Guest

#73

2016-03-21 14:17

Vil ekki áfengi í búðirna. Ef ég kaupi áfengi þá get ég alveg keypt það í ríkinu eins og alltaf.

Guest

#74

2016-03-21 17:37

Öll rök gegn frumvarpinu snúast um rannsakaða lýðheilsulega þætti sem geta kostað samfélagið gríðarlega ef frumvarpið verður samþykkt. Öll rök með frumvarpinu snúast um það að fólk nennir ekki að ganga/keyra í ríkið. Er virkilega vafi á því hvor rökin vega þyngra, lýðheilsan eða letin?


Guest

#75

2016-03-21 19:51

Tel áfengi ekki eiga erindi í matvörubúðir.