Krafa um afsögn Innanríkisráðherra.

365

/ #81 ÓTRÚLEG MANNVONSKA Í ALLA STAÐI.

2015-12-10 16:10

Ótrúlega erfitt að horfa á þessar myndir af fjölskyldunni vera borin af landi brott! Afhverju?!?!? Og ef ég væri í lögreglunni og ætti að fara og bera hjartveikt barn af landi brott þá mundi ég frekar segja af mér...ömurlegt fyrir lögregluna að hugsa alltaf út í það að þeir komu þeim út úr örygginu sínu! Minnir mig á lestina sem sótti gyðinga í útrýmingarbúðir nasista og það að gyðingarnir vissu ekki hvert stefndi og hvað mundi gerast næst...hvað verður um þessar fjölskyldur og veiku börnin sem voru farin að aðlagast öruggu lífi á íslandi, Á ÍSLANDI!! Ólöf Nordal og þeir sem standa á bak við þessar ljótu ákvarðanir mega setja sig í spor Albönsku fjölskyldunnar og koma þeim aftur heim fyrir jól!!!!!