Lánasamningar

Krafa okkar sem skrifa hér undir með tölvupósti er að viðskiptanefnd alþingis krefji alla banka og íbúðarlánasjóð sem eru með lánasamninga í fasteignaviðskiptum bæði fyrir gengislán og verðtryggð lán að koma nú fram fyrir viðskiptanefnd alþingis með sannanir fyrir lögmæti skilmálanna í öllum sínum stöðluðu lánasamningum og sönnun fyrir lögmæti lánasamninganna. Þannig að hægt verði að sigta út hvaða samningar eru samkvæmt lögum sem Ísland er aðili að og hvaða samningar eru það ekki. Einnig er okkar krafa að viðskiptarnefnd ráði óháða erlenda aðila til að yfirfara þessa samninga og komi svo með niðurstöðu til viðskiptarnefndar alþingis. Með þessum aðgerðum verður auðveldara fyrir einstaklinga með ólögmæta skilmála eða ólögmæta lánasamninga að sækja rétt sinn fyrir íslenskum dómstólum.  Vinsamlega sendið fullt nafn á Lanasamningar@gmail.com   


Ríkharður Jósafatsson    Contact the author of the petition