Mótmælum að neyða Íslensk börn úr landi til ofbeldisfulls föður!

Quoted post

Guest

#54 Re: Re: Re: Re: hverju á að trúa?

2011-03-15 14:35

#52: Hjördís - Re: Re: Re: hverju á að trúa?

Þegar ekkert er búið að sanna á föðurinn, þá verður að mínu mati, ef við viljum búa við réttlátt réttarfar, að leyfa honum að njóta vafans þar til hægt er að sýna fram á ofbeldi með óyggjandi hætti og fá hann dæmdan fyrir það. Því er ég algerlega hliðholl, að það sé gert, enda ólíðandi að slíkt viðgangist. Það verður hins vegar að fara réttar leiðir að því og ég er ekki sammála því að lögbröt sé sú leið.

Ég er því miður, frekar á því að slíkt grafi einmitt undan trúverðugleika og trausti móðurinnar í augum réttarkerfisins og þeirra dómstóla sem málið er í vinnslu hjá.

Þegar fólk er ásakað um glæp, sama hver sá glæpur kann að vera, þá hlýtur sönnunarbyrðin samkvæmt eðli málsins að vera hjá þeim sem kærir. Grundvallarstoðir vestræns samfélags og réttarkerfis byggja á því að fólk sé saklaust þar til sekt er sönnuð og það finnst mér ekki ósanngjarnt.

Það að mótmæla kerfinu er síðan allt önnur saga og eflaust er víða pottur brotinn þar og ástæða til umbóta. Það má alltaf gera betur alls staðar. En að brjóta lög til að mótmæla réttarkerfinu er að mínu mati ekki vænlegt til vinnings.

Nú stendur faðirinn með það tromp í höndunum að búið er að dæma móðurina fyrir óréttmætan flutning barnanna til Íslands en enn hefur henni (þér?) ekki tekist að sanna á hann ofbeldi og hann er því með hreinan skjöld í augum dómstóla. Nú er ég enn og aftur ekki að taka neina afstöðu til þess hvort hann er sekur eða saklaus, alls ekki, bara að benda á staðreyndir sem hafa verið lagðar fram og viðurkenndar sem opinberar upplýsingar.

Ég stend því við orð mín og held því fram að mun réttara væri að stofna til söfnunar eða samskota til að styrkja móðurina (þig?) til fararinnar, þannig að hægt sé að ganga frá þessu máli og fá í því dæmt í eitt skipti fyrir öll, með réttum leiðum. Fjármunir hjálpa mun betur heldur en huglæg árás á réttarkerfið, og gætu búið svo um hnútana að hægt væri að ráða skikkanlegan lögfræðing, bæta tekjutap og standa straum af húsnæðiskostnaði og öðru þvíumlíku meðan á dvölinni og réttarhöldunum stendur í Danmörku.

 

Replies

Guest

#55 Re: Re: Re: Re: Re: hverju á að trúa?

2011-03-15 15:35:40

#54: Guest - Re: Re: Re: Re: hverju á að trúa? 

 Ég myni vilja að þú kæmir undir nafni og þá gæri ég hringt í þig og sagt þér frá málinu,  Það er engin manneskja sem myndi leika sér að taka börnin sín og fara með þau úr landi , það get ég alveg sagt þér!

en ég og margir aðrir sem þekkja til málsins, erum ekki í vafa að þetta var rétt leið. þetta hálfa ár

hefur verið börnunum afargott, við erum komin í gamla bæinn okkar og til fólks sem elskar okkur, þurfum ekki að búa við hræðslu og ótta. Börnin mín fengu ekki hjálp í Danmörku, við vorum peningalaus, án húsnæðis og öllum var sama! Afhverju ætli lögmaður mannsins hafi barist hart við að talað yrði við börnin og á móti að talað yrði við 13 ára gamlan son minn? En ég vill biðja fólk að hringja frekar í mig heldur en að vera tjá sig um þetta hér, Sonur minn getur lesið þetta hann er 13 ára, og þarf að missa móður sína og systur til DK og hefur hann miklar áhyggjur af öryggi okkar, hann á að fermast en það verður ekki neitt út því.

Svo prófið að setja ykkur í okkar spor og hugsa hvað þið mynduð gera ef þið ættuð að senda börn ykkar til ofbeldismanns??

kveðja

Hjördís

Guest

#56 Re: Re: Re: Re: Re: hverju á að trúa?

2011-03-15 15:39:19

#54: Guest - Re: Re: Re: Re: hverju á að trúa? 

Það er góðir punktar hjá þér í þessari grein td um að safna fé til að styrkja konuna, slík söfnun er í gangi og vona ég að þú leggir þeirri söfnun lið.

Vissulega þarf að dæma mál út frá lögum en þá þarf líka að skoða allar hliðar og dæma út frá því.

Þú segir að ekki hafi verið sannað að beitt hafi verið ofbeldi ekki var ekki talað við elsta drenginn í fjölskyldunni, né nágranna (vitni) lögregluskýrslur og fleira slíkt hefur ekki verið tekið til greina.

Mér finnst glæfralegt af Íslensku réttarkerfi að senda börn til manns sem virðist hafa beitt börn sín, stjúpson og konu ofbeldi án þess að það sé skoðað fyrst. 

Ég er svo sannarlega ekki sammála því að maðurinn í þessu máli eigi að njóta vafast í þessu máli  -það eru börnin sem eiga að fá að njóta vafans ! Og þau eiga að fá að vera á heimili sínu hér á Íslandi en ekki flutt til danmerkur langt frá fjölskyldu, vinum og stuðningsneti sínu -þar til sekt, já eða sakleysi hefur verið sannað.

??Og hver er að tala um að styrkja lögbrot eða grafa undan réttarfari landsins ??