Við mótmælum sýningu Mike Tyson á Íslandi

Quoted post

Eldur

#7

2015-07-04 17:17

Ég á rosalega erfitt með að átta mig á hvaða boðskapur liggur hérna undir. Eru feministar að fara bakdyramegin í því að styðja dauðarefsingar? Ég ætla ekkert að tjá mig um mál Tyson enda þekki ég ekki til þess. Nauðganir eru viðbjóðslegar sama hvort kona eða karl er gerandi eða þolandi. En við búum við kerfi þar sem markmið fangelsisvistar er betrun. Og ég sé að þessi maður hefur setið inni fyrir sinn glæp og þannig greitt samfélaginu fyrir brot sitt. Er boðskapurinn sá að þó að afplánun sé lokið og maðurinn með dóm að honum eigi að ýta úr samfélaginu og útskúfa, og þar að leiðandi auka líkur á að ýta honum út í frekari glæpamennsku. Rannsóknir sýna að slík framkoma eykur líkurnar á frekari brotum. Eruð þið þá ekki í raun að segja að dauðarefsingar séu lausnin á þessu til að samfélagið verði öruggara?

Replies

Elísabet Ýr Atladóttir
The author of this petition

#8 Re:

2015-07-04 17:26:28

#7: Eldur -  

 Hvar færðu út að dauðarefsing sé inní þessu? Þetta er ótrúlegt stökk frá því sem er sagt hérna.

Þessi undirskriftalisti var gerður því hann hefur aldrei tekið ábyrgð á brotum sínum. Hann afneitar því enn, þótt hann hafi verið dæmdur, og það nægir ekki að menn sitji í fangelsi í fáein ár og fari svo um og ljúgi upp á þolendur. Hefði hann tekið ábyrgð og bætt fyrir brot sín hefði þessi listi aldrei orðið til.